Rauda stjarnan laetur ljós sitt skína
Dagsetning
23. febrúar 2012
09.04.2008 22:23:35 / Ballisig

09.04.08

Jæja þá er fyrsti leikurinn í deildinni búinn og við töpuðum 1-0 á heimavelli. Ekkert meir um það að segja, leiðinlegt að tapa. Pappi og Elísabet komu í heimsókn og voru í 5 daga og sáu leikinn og vil ég þakka þeim fyrir skemmtilega og ánægjulega heimsókn!! United voru áðan að snýta Róma og gaman að sjá De Rossi klúðra óverðskulduðu vítaspyrnunni sem þeir fengu!! Svo taka þeir bara Arsenal í deildinni á sun og þá er tvennan gulltryggð, spurning um að hafa bara Neville á miðjunni og Silvestre á kantinum, Arsenal eru hvort eð er búnir á því!! Ég býð hér með Hadda í 3000 kr veðmál um leikinn og vill ég fá staðfestingu á veðmálinu frá honum í kommentum. Sumarið er hægt að og sígandi að smjúga sér inn, það koma sífellt fleiri sólardagar og rigningardögunum fer þar með fækkandi og brúnkulevelið fer sífellt hækkandi í samræmi við það. Ég myndi segja á skalanum 0 - 100 að þá sé ég svona í c.a 55 í taninu og það mun bara fara hækkandi!!  

Svo ætla ég loksins að æla út úr mér því sem ég hef ætlað að skrifa lengi og það er að tilnefna Símann mesta skítafyrirtæki Íslands. Ég hef lent svo mörgum sinnum í því að upplifa hvað þjónustan hjá þeim er til óborganlegrar skammar. Fyrst skiptið sem ég lenti í var þegar ég var á fyrstu önninni minni í Háskólanum og farið var að nálgast prófin og mig bráðvantaði netið til að geta skoðað gömul próf og svona heima. Þannig að ég panta netið og þau segja mér að þetta taki svona 3 -5 daga að komast í gagnið. Og svo að sjálfsögðu eftir 5 daga var ekkert búið að gerast svo ég hringi í þjónustusímann og talaði við þá í svona klst án árangurs þannig að þeir ætluðu að senda mann bara eftir svona 2-3 daga. Svo að sjálfsögðu lét enginn sjá sig á næstu dögum þannig að ég hringi aftur og þá könnuðust þau ekkert við að e-r maður ætti að koma en hann ætlaði að senda mann á staðinn sem fyrst, en sagan endurtók sig og þá var ég orðinn nett pirraður og hrindgi aftur og svo loks eftir 2 vikur kom mannhelvítið og það tók hann svona 3 mín að fatta að netfangið mitt var ekki ballisig@simnet.is eins og ég hafði pantað það í upphafi heldur hafði kerlingarálkan sett inn ballsig@simnet.is og þetta tók 2 vikur að laga!! Ég hef fjöldamorg önnur tilfelli en þar sem ég er svo latur við að skrifa ætla ég bara að koma með eitt annað tilfelli. En það var núna síðasta sumar að þá ætlaði ég að fá mér nýjan síma. Síminn sem ég ætlaði að fá mér var ekki til í kef þannig að ég þurfti að fara til Rvk til að kaupa hann, en þar sem ég var alltaf að vinna til 4 og æfingar eftir ákvað ég bara að panta hann og láta þá senda mér hann. Þannig að ég hringi og panta hann og svo reiknaði ég með að geta sótt hann á pósthúsið daginn eftir þar sem þetta var nú bara frá rvk til kef. Nei síminn lét ekki sjá sig daginn eftir og ekki daginn eftir það og ekki daginn eftir það heldur, þannig að ég hringi nú inn í rvk til að skoða málið og þá var enginn sími á leiðinni, það hafði víst verið einhver misskilningur með litiin á símanum og þess vegna hafði þetta tekið svona langan tíma. En þar sem ég var orðinn nett pirraður á þeim þarna enda ekki í fyrsta skipti sem þeir drulla á sig að þá ákvað ég bara að leyfa þeim að spara sér ómakið og sagðist bara ætla bara að fara sjálfur og kaupa mér símann. Svo fór ég og keyrði í 40 mín á laugardegi og keypti mér símann og var það ekkert vandamál, en svo viku seinna hringir maður í mig frá símanum og tilkynnir mér það voða stoltur að hann hafi verið að senda síma til mín sem ég hafði pantað!! En það virðist nú samt vera að þessi arfalaka þjónusta sé ekki bara í Símanum á Íslandi því ég fékk mér netið hérna úti um daginn og þeir létu mig kaupa router upp á nærri 10.000 kall og sögðu svo að ég þyrfit bara að plögga honum í samband, setja hann upp og þá ætti allt að vera klappað og klárt eftir 3 daga. Svo gerðist ekki neitt og ég hringi í þjónustusímann þeirra og þá var mér tilkynnt að ég þyrfti að bíða í 2 vikur eftir að það kæmi maður og setti upp netið hjá mér og það sem meira er að hann kom með router sjálfur og setti hann upp þannig að ég hafði ekkert að gera með 10.000 kr routerinn minn ( sem ég fékk endurgreiddan). 

Jæja það er gott að vera búinn að koma þessu frá sér enda hefur þetta blogg legið lengi í kollinum.

En nóg í bili...næsti leikur á sunnudag á móti Nýjabergssundi


» 18 hafa sagt sína skoðun

03.03.2008 17:00:38 / Ballisig

Myndir

Jæja,hérna koma nokkrar myndir af íbðunni. Það á eftir að lagfæra og fínisera ýmislegt en það er að komast á heildarmynd. Þannig að nú vitið þið á hverju þið eigið von á þegar þið komið í heimsókn !!!

Hej

CIMG0617.jpg picture by bodasif

CIMG0619.jpg picture by bodasif

CIMG0618.jpg picture by bodasif

CIMG0620.jpg picture by bodasif

» 13 hafa sagt sína skoðun

02.03.2008 00:50:06 / Ballisig

02.03.08

Jæja er ekki kominn tími á að skrifa aðeins og segja frá lífinu hérna í Noregi á nýju ári. 
Bergþóra flutti til mín hingað út þann 11. janúar, en ég hafði fengið íbúðina mína daginn áður. Við höfum því haft nóg að gera við að gera íbúðina visthæfa og er hún svona á góðri leið með það. Íbúðin er á 2 hæðum og erum við svona nánast búin með neðri hæðina, þannig að næst á dagskrá er áð demba sér í efri hæðina svo að við getum tekið á móti öllum gestunum sem ætla að koma á næstu mánuðum (Mamma, Pabbi, Elísabet, Freysi, Haddi, Kobbi og allir hinir I´m talking to you!!!) Spurning um að skella inn myndum við fyrsta tækifæri af íbúðinni og lífinu hérna í Stavanger. 
    Af boltanum er bara fínt að frétta og þeir sem vilja fylgjast með geta farið inn á heimasíðu Bryne sem er brynefk.no, en þeir eru duglegir við að koma með fréttir af málum og gengi liðsins. Annars er svona það helsta að við fórum til Tyrklands í viku um daginn í æfingaferð og svo er önnur á dagskrá til La Manga þann 8. mars. Spiluðum leik við Branko og félaga í Start á fimtudaginn og gerðum jafntefli 1-1 og svo er leikur á mið næsta við Brann. Deildin byrjar svo 6. apríl á heimaleik við Sogndal. Liðið lítur bara nokkuð vel út og er spennandi að sjá hvernig gengið á eftir að vera í sumar. Það er mun meiri samkeppni um stöður nú en síðasta sumar þannig að það er bara að standa sig.
    Akkúrat núna er ég í 3 daga kærkomnu fríi frá boltanum og höfum við Bergþóra bara tekið því rólega og látið fara vel um okkur hérna heima. Við fengum loksins almennilegar sjónvarpsstöðvar í síðustu viku þannig að við getum farið að horfa á enska og ítalska boltann og svona og veit ég að Bergþóra var sérstaklega ánægð með það!!;)
 
En jæja bið að heilsa í bili...

helt´s híbbl...
    

» 2 hafa sagt sína skoðun

28.11.2007 21:37:39 / Ballisig

28.11.07

  • Halló halló allir saman.
  • Best að henda inn smá updati á hvað hefur drifið á daga mína síðan síðast sem er alltof langt síðan reyndar. En allavega að þá eru æfingar byrjaðar aftur eftir frí og fyrsta vikan einkennist af eintómum testum og mælingum. Þetta verður svona þokkalega rólegt í þessar 3 vikur áður en að kemur að jólafríi en það er frá 14. des til 3. jan. En síðan eftir áramót byrjar þetta á fullu og verða æfingar 2 á dag alla virka daga og leikir á laugardögum. Ég reikna fastlega með einhverjum killer hlaupum ef að ég þekki Norðmennina rétt. Við förum síðan í æfingaferð til La Manga 8. mars og verðum í viku þar og svo er hugsanlegt að við förum til Tyrklands 17. feb í viku. Tímabilið byrjar síðan 6. apríl og skora ég á alla að koma í heimsókn og kíkja á eins og einn leik, en ég og Bergþóra munum fæða og klæða alla þá sem koma af einskærri einlægni!!
  • Fríið á Íslandi var alveg einstaklega gott og ég held að ég hafi náð að hitta svona flesta mína nánustu meðan ég var þar en ef að einhver varð útundan að þá lofa ég að bæta úr því sem fyrst;) Ég kom heim 31. okt held ég og var fyrstu vikuna hjá Bergþóru í Keflavík og fór svo norður í Mývó til pabba. Eftir það fór ég til mömmu og svo var í Keflavíkinni síðustu dagana áður en að ég fór út. Ef ég má fara aðeins út úr hörkutóls skelinni og vera smá væminn að þá var þetta frí alveg frábært og æðislegt að geta verið með Bergþóru á hverjum degi því það getur verið hrikalega erfitt að hitta hana ekki í margar vikur í senn síðan ég kom út. En það breytist eftir áramót þegar hún flytur út og hlakka ég ótrúlega til þess. Og svo líka að hitta mömmu og pabba en þau eru náttlega alveg frábær og að ég tali nú ekki um systurnar mínar tvær;)
  •  Bíðið aðeins.......klink, klank, klunk klonk......ok kominn aftur í Balli hardcore mode.
  • En já hmm eins og ég sagði hér að ofan að þá fer ég í jólafrí 14. des en þann 15 ætlum við Bergþóra að fara til Parísar og vera þar í viku og upplifa jólastemmninguna þar á meðal Fransaranna. En ég reikna síðan með að vera kominn norður 22 eða 23 des. Haddi kallinn er staddur þessa dagana í Danmörku og er við æfingar hjá Viborg og efast ég ekki um að kappinn eigi eftir að heilla þá upp úr skónum.
  • Jæja bið að heilsa til Íslands og við bara heyrumst...
  • Blessaður....

» 14 hafa sagt sína skoðun

18.09.2007 23:03:09 / Ballisig

19.09.07

Halló halló Jæja þá er ég kominn með íbúð, fékk hana á laugardaginn og hef bara svona verið að koma mér fyrir, kaupa hitt og þetta sem vantar. Spiluðum á sunnudaginn útileik við Skeid...eða Shite...eða you look like Shite...og unnum 2-1. Spiluðum í Osló og finnst mér ég vera frekar heppinn að hafa komist lifandi frá leiknum þar sem að mengunin í loftinu var ekki eðlileg, maður hefði þurft að fá koddann hans Hadda lánaðan til að vera með fyrir andlitinu í leiknum!! Ég keyrði til Stavanger um daginn og skoðaði miðbæinn og svona og svo þegar ég var að far út úr bænum fékk ég þetta myndarlega fuck merki frá svona 70 ára gömlum kalli þannig að ég keyrði á eftir honum og byrjaði á keyra inn í hliðina á honum en helvítis kallinn var býsna góður bílstjóri og þannig að það tók tíma að ná honum út af veginum, en ég náði á endanum að velta bílnum hjá gamla, en það var ekki nóg!! Þegar ég ætlaði að fara að athuga hvort að hann væri nokkuð meira til frásögu snarast hann út úr bílnum eins og elding og gefur mér þetta væna karate spark í magann. Ég fipast og dett og í sömu andrá og hann ætlar að koma og gefa mér náðarhöggið næ ég að teygja mér í járnrör sem liggur á jörðinni og já.....þið kannskið vitið síðan restina af sögunni, blessuð sé minning hans!! Heyrðu nei nei en það var samt gamall kall sem gaf mér fingurinn, hef líklega svínað á hann eða eitthvað.  Hvað meira hvað meira...við erum nokkuð duglegir við að fara í póker eftir æfingar og svona, og ég þarf væntanlega ekki að segja ykkur frá því að...æi ég vill ekki vera monta mig...en ok sko...æi nei ég get þetta ekki...æi ok ok sko ég er búinn að vinna 2 af 3 skiptum sem ég er búinn að vera með...hell je!! Hmm ég nenni enn ekki að blogga um það sem hefur farið í taugarnar á mér undanfarið...eða fór í taugarnar á mér á Íslandi réttara sagt..geri það næst. Eeeen höfum smá fréttir í lokin: 
  • John Malkovic hefur hætt í leiklistinni og er orðinn markvörður hjá Rosenborg.
  •  
  • Heyrst hefur að Bergþóra Sif hafi sótt um hjá kattaathvarfinu, Kattholti. Bergþóra er víst orðinn svo hænd að köttum eftir að hún fékk eitt stykk á heimili sitt fyrir nokkru að nú er draumur hennar að verða Kattar”mamma”. Hún er víst farinn að senda sms til nákominna um að hún vilji láta kalla sig “Kattarkonuna” (e.Catwoman).
  •  
  • Hinrik Geir festi nýverið kaup á ultra-mega-zega tanmaster 7000 ljósabekknum. Já kominn tími til white boy...;)
  •  
Aaa nenni þessu ekki lengur heyrumst

» 18 hafa sagt sína skoðun

12.09.2007 20:15:22 / Ballisig

12.09.07

Jæja þá er best að gefa sér smá tíma til að blogga, ekki það að ég hafi ekki nóg af tíma til þess að blogga en ég er bara með króníska bloggleti sem er gríðar erfitt að vinna bug á...En allavega að þá er allt fínt frétta af mér héðan úr Noregi. Ég er enn á hóteli en er að fara fá íbúð annað hvort á föstudaginn eða mánudaginn og er þetta bara fínasta íbúð, með öllum húsgögnum og svona. Ég ætla að leigja til að byrja með og sjá svo til hvort að það borgi sig að kaupa. Svo er ég búinn að spila fyrsta leikinn minn með Bryne og var það heimaleikur við Ham Kam sem eru í 2. sæti í deildinni. Við unnum leikinn 3-0 svo að þetta byrjar vel bara. Það búa svona 15000 manns hérna í Bryne og svona 60000 manns í Jæren sem Bryne er hluti af. Þetta er svona doldið dreifbýlt svæði hérna og menn segja að Bryne sé á svæði sem er hvað best fyrir búskap í Noregi þar sem að það er milt veður hérna allt árið og einnig hvað það er lálent hérna, allavega miðað við Noreg. Þannig að þetta hentar mér ágætlega, manni líður bara eins og maður sé kominn í Mývatnssveit þegar að maður sér stráka koma á dráttarvélinni hans pabba síns í bæinn. Já spurning um að fá sér bara einn Massey Ferguson. Bergþóra ætlar svo að koma heimsókn 20. Sept og verður það alllllls ekki leiðinlegt;) Svo eru fleiri að skipuleggja heimsóknir en svona sá eini sem er búinn að kaupa sér miða er Andri Valur en hann ætlar að koma á Molde leikinn sem er 21 okt held ég.  Svo eru nokkur mál sem ég hef haft í huganum lengi og langað að blogga um en ég nenni því ekki núna þannig að ég segi þetta bara gott í bili later

» 7 hafa sagt sína skoðun

07.09.2007 16:28:12 / Ballisig

nytt numer

hallo hallo

 tha er eg fluttur til Noregs og simanumerid mitt thar er:

 0047-41448482

og svo bara vera dugleg ad hringja eda smessa;)

fer ad blogga oftar thegar eg verd kominn med ibud og netid

heyrumst


» 3 hafa sagt sína skoðun

24.07.2007 22:29:19 / Ballisig

24.07.07

kæra dagbók

  • ég vaknaði í morgun nokkuð þreyttur en samt pínu ferskur, þannig að það má eiginlega segja að ég hafi verið svona í milliveginum. Fór fram úr og tannburstaði mig, setti svona meðal mikið tannkrem á burstann og lét renna ískalt vatn á hann til að bleyta vel í honum. Eftir að ég var búinn að bursta mig fór ég og klæddi mig í fötin, ákvað reyndar að fara í vinstrsi sokkinn fyrst en eins og þú veist klæði ég mig alltaf í hægri fyrst, skemmtileg tilbreyting. Eins og vanalega fékk mér ekki morgunmat og fór því bara rakleitt í skóna, tók fréttablaðið úr kassanum og hélt af stað út í bíl. Eftir að ég var búinn að setja bílinn í gang setti ég í fyrsta gír og lagði af stað upp í vinnu. Eftir um c.a 5-7 mínútur var kominn í vinnuna og það fyrsta sem ég gerði var að fara upp í kaffistofu og hella smá kaffi í bolla sem ég tók síðan með mér niður í skemmu. Þegar ég var búinn með kaffið setti ég handtölvuna á hægri höndina og hélt af stað að tína vörur. Við vorum fljót með pantanirnar og eftir c.a einn og hálfan tíma fórum við í kaffi. Ég byrjaði á að blanda mér djús og settist svo við borðið og hóf að smyrja digestive kex og setja ost á. Fékk mér 3 svoleiðis en fékk mér síðan ristaða beyglu með smjöri og osti. Eftir beygluna fylgdu 3 homeblest, 3 digestive, 2 tekex og 3 djúsglös. Við vorum í c.a 20 mín í kaffi en héldum svo áfram að vinna. Það var ekki mikið að gera svo ég var soldið á netinu, halda bolta á lofti og svo bara að spjalla. Þegar kl sló tólf labbaði ég út í bíl og hélt af stað út í matarlyst til að ná mér í matarbakkann minn. Svo fór ég heim, sagði hæ við hadda og Hörpu sem voru nývöknuð, fór inn í herbergi og setti á stöð 2 og horfði á hádegisfréttirnar. Í matinn voru kjötbollur með sósu og kartöflum, þrjár kjötbollur og fimm kartöflur. Ég varð nokkuð saddur og eftir matinn lagðist ég upp í rúm og hallaði mér. Kl tíu mínútur í eitt vaknaði ég og fór aftur upp í vinnu. Það var sama sagan eftir hádegi lítið að gera svo við vorum bara að dunda okkur eitthvað mest allan tímann. Veðrið var búið að vera mjög gott allan morguninn en það byrjaði síðan að rigna eftir hádegi og rigndi doldið lengi en það var samt búið að stytta upp þegar ég fór úr vinnunni kl fjögur. Eftir vinnu náði ég í Bergþóru og fór að erindast pínu með henni. Þegar við vorum búin að erindast um korter í fimm fór ég heim, skipti um föt og fór á æfingu. Þegar ég kom á æfingu bryjaði ég á klæða mig. Ég fór í brók, nárabuxur, stuttbuxur, sokka, bol og peysu og já að sjálfsögðu takkaskó. Ég fékk síðan far með Steina upp á æfingasvæði. Æfingin byrjaði kl hálf sex og byrjuðum við á að taka upphitun sem Jónas stjórnaði og fórum svo í reit. Eftir reitinn fórum við í fyrirgjafa æfingu sem við leikmennirnir unnum markmennina í. Svo tókum við spil í c.a hálftíma í lokin. Eftir teygjur fór ég niður í klefa og kældi nárann og ristina og skellti mér í sturtu. Eftir að ég var svo búinn að klæða mig fór ég og fékk mér að borða og hélt svo heim á leið. Þegar ég kom heim voru haddi, harpa og Marco þar en Marco var kominn til að horfa á Valur - Fylkir á sýn. Við horfðum á Fylki vinna val og við getum því jafnað þá að stigum ef við vinnum FH á laugardaginn. Marco fór síðan heim fljótlega eftir leik og Haddi og Harpa fóru yfir í sitt herbergi. Ég setti á fréttirnar og eftir þær fór ég að segja þér kæra dagbók frá gjörðum mínum þennan daginn. Og nú fer dagurinn að verða búinn þannig að ég segi bara góða nótt og ég  hlakka til að skrifa í þig aftur kæra dagbók. Það er svo gott að geta sagt þér frá öllum mínum leyndarmálum því ég veit að þú ert ekki að fara segja neinum, þú ert frábær.
  • Kossar og knús
  •  bæjó

» 12 hafa sagt sína skoðun

01.07.2007 22:44:22 / Ballisig

01.07.07

  • nýtt blogg ha...já fyrr en þið haldið...þið reiknuðuð ekki með þessu hahaha...ég vinn alltaf!!
  • neinei ég er ekki orðinn snargeðveikur ennþá þótt ég búi í kef (djók allir keflvíkingar...ekki djók allir hinir) hins vegar er ég orðinn það mikill hnakki að ég er á leiðinni á Justin Timberlake tónleika um næstu helgi í London og ég hef ákveðið að vera í hvítum hlírabol á tónleikunum og svo ætla ég að fá mér bling bling í eyrað og tattúa Justin með grískum stöfum á bicepinn...yeah that´s right!! Begga Sibba ætlar að vera í slagtogi með mér og stefnir í alveg hreint rööööösalega ferð!!!
  • Haddi kom inn á skemmtilegan punkt á æfingu áðan sem mig langar segja ykkur frá hérna á blogginu...sko þannig er mál með vexti að Haddi var á röltinu um daginn að kvöldi til með Hörpu. Það var fínasta veður úti, smá gola en heitt og tilvalið göngutúra veður...en allavega að þar sem að þau eru á röltinu sjá þau lítið i koma labbandi á móti þeim og þau taka strax eftir að því vantar punktinn. i-ið var mjög dapurt og spurði hvort að þau hefðu nokkuð rekist á punktinn þau neituðu því en sögðust myndu láta það vita ef þau fyndu hann. Og hvað haldiði, þegar Haddi er á leið á æfingu áðan og sest inn í bílinn sér hann ekki punktinn sitjandi í aftursætinu á bílnum. Haddi býðst til að skutla punktinum til i-sins og á leiðinni segir punkturinn hadda alveg fjöldann allan af frábærum sögum...alveg magnað!! 
  • Neinei svona í alvöru þá fórum við haddi að ræða um menn sem halda því fram að þeir hafi bara aldrei tapað á æfingum. Halli Har er gott dæmi um það, hann hefur lýst því yfir að hann hafi bara nánast aldrei tapað á æfingum þegar hann var að spila. Það eru margir sem halda því fram að þeir tapi aldrei á æfingum en svona eru kannski ekki að meina það til mergjar en svo koma menn eins og Halli sem meina það bara 100% haha..."20 ára ferill og ég tapaði í mesta lagi 5 sinnum á æfingum"...;)
  • En annars svona af daglegu lífi er allt fínt að frétta bara, gengur þokkalega hjá okkur í boltanum og sambúðin gæti verið betri...ekki alveg nógu oft þrifið eftir að Harpa kom en það er allt í lagi til að byrja með það, þarf náttúrulega smá aðlögunartíma (harpa djók....strákar ekki djók yeah;)). ég er búinn að fara 2 svar í M'yvó í sumar og var reyndar bara ap koma þaðan í dag, en hún elskuleg systir mín á afmæli í dag og hélt upp á það með svaka veislu í gær.
  • jæja set inn smá fréttir í lokin:
  •  Hallgrími Jónassyni hefur verið boðið í gullvildarklúbb lengjunnar. Þetta þykir mikill heiður en aðeins þeir sem tippa einu sinni á dag eða oftar í heilt ár fá boð í þennan klúbb. 
  • Ásgeir Benediktsson leikmaður Mývetnings mun víst sitja á bekknum í næsta leik hjá liðinu. Ásgeir hefur ekki verið nógu sannfærandi upp á síðkastið og þótt misnota helst til mörg færi. Þykir víst að Gunnar Ingi Stefánsson muni fá sénsinn en hann þykir einkar lúnkinn línupotari og binda menn miklar vonir við að markaskorunin muni batna við þessa breytingu.
  • Myndir hafa náðst af mývetningnum Hinriki Geir Jónssyni þar sem að hann er íklæddur hvítum netahlírabol. Þetta þykja merkilegar fréttir þar sem að Hinrik er annálaður rokkari og hörkutól. Ekki er hægt að spá fyrir um hvað þetta mun hafa mikil áhrif á orð
  •  fleiri fréttir síðar
  • adios

» 12 hafa sagt sína skoðun

31.05.2007 01:39:02 / Ballisig

31.05.07

  • Jæja andinn er skriðinn úr lampanum og ætlar að verða við æðstu ósk ykkar lesenda...nýtt blogg!!!
  • Það hefur svo sem ýmislegt gerst síðan síðast. Svona ef ég fer yfir það helsta að þá er ég byrjaður að vinna upp í fríhöfn og verð þar í sumar. Starfsheiti mitt er ekki af verri endanum en það er vöruumsjónarmaður eða vörutæknir á fagmáli og má nú aldeilis segja að ég og Freysi séum loksins að sjá Háskólanámið skila sér en Freysi fékk vinnu í ekki ómerkara fyrirtæki en Landsbankanum sem yfirmaður hússtjórnunar. já hvað meira...já Harpa kærastans hans Hadda er svo að fara flytja til Hadda í sumar og mun búa með okkur hérna á Suðurgötunni og er það bara hið besta mál. Ég og Haddi höfum verið í óða önn við að undirbúa komu hennar og höfum verið að endurskipuleggja eldhúsið og ræstikompuna svo það verði nú sem þægilegust vinnuaðstaðan hennar í sumar. Já talandi um Hadda, hann er bara eins og hann er...lítið hægt að breyta því. hmmm hvað meira hvað meira...já skandall að Eíríkur Hauks hafi ekki komist áfram og vill ég bara segja við þig Eiríkur: Til hamingju með frammistöðuna og stóðst þig eins og hetja. Evrópa er rugluð að hafa ekki kosið þig í úrslitakeppnina. Haltu áfram þínu striki og þá muntu uppskera vel, því þú hefur sko aldeilis verið að sá og það sko ekki í grýtta jörð skal ég segja þér.
  • Ég hef fengið endurnýjun lífdaga í golfheiminum en haldiði að litli pabbastrákurinn hafi ekki fengið golfsett í afmælisgjöf og vitiði frá hverjum...rétt hjá ykkur. Ég ætla því hér með að skora á Andra Val í að taka einn golfhring við tækifæri og skera endanlega úr um hvor sé betri golfari. En þú lesandi góður ef þú þekkir Andra að þá hefurðu örugglega heyrt hann monta sig af því að hafa unnið mig í golfi á Húsavík um árið. Já ég skal viðurkenna það að Andri hitti í dráttervéladekkið á undan mér en keppnin fólst í því að við stóðum svona 10 metra frá dráttevéladekki og sá myndi vinna sem hitti fyrr í dekkið. S.s álíka marktæk keppni og láta 2 fótboltamenn standa við línu og setja keilu 10 metra frá línunni og sá sem myndi hitta fyrr í keiluna væri betri fótboltamaður. 
  • Já svo vill ég biðja lesendur að róa sig í kommentum og vera ekki að skrifa klúryrði en ég fékk hótun um að síðunni minni yrði lokað ef þetta héldi áfram en dæmi um orð sem hafa fallið í kommentum er "sjúga linann" ásamt fleiru sem ekki er við hæfi að skrifa hér.
  • Já fáum smá fréttir í lokin:
  • Haddi fær víst ekki bætt tjónið á bílnum eftir áreksturinn um daginn. En svo er mál með vexti að Haddi er ekki undir sama hatti og hinn venjulegi maður hvað varðar tryggingar. Tryggingafélagið og Haddi gerðu nýverið með sér samning um að Haddi fengi væna greiðslu og með því væri tryggingafélagið laust allra mála frá Hadda en eins og menn vita hefur tryggingafélagið orðið fyrir gríðarlegu tapi undanfarin ár vegna meiðslasögu Hadda. Samningur þessi náði yfir allar gerðir trygginga hjá Hadda og þarf Haddi því að borga viðgerðina á bílnum sjálfur. Haddi sagðist í samtali við síðuna ekki hafa vitað að samningurinn hafi náð yfir allar gerðir trygginga og að hann hafi haldið að samningurinn næði aðeins yfir sjúkratrygginar.
  • Jón Kolbeinn hinn danskættaði seyðfirðingur hefur boðað komu sína til landsins þann 22 júní n.k. Lögreglan segist munu vera í viðbragðsstöðu við komu Jóns til landins en búist er við múgi og margmenni í Leifsstöð. Líklegt þykir að tvífari verði sendur út úr flugvélinni en hinn rétti Jón muni halda áfram og lenda í rólegheitum á Egilsstöðum. Talið er að góðvinur Jóns, Björn á Stöng, muni vera fenginn til að vera tvífarinn...
  • fleiri fréttir síðar...adios...næsta blogg mun koma fyrr en þið haldið... 

» 7 hafa sagt sína skoðun

27.04.2007 01:13:27 / Ballisig

27.04.07

Sá link á þessa síðu hjá Andra, hvet alla til að tékka á þessu...helvíti sniðugt! Ég hef einmitt komið til 10 landa f. utan Ísland...maður verður að fara að drífa sig ef maður ætlar að sjá allan heiminn!!!

http://www.world66.com/myworld66/visitedCountries

 fer að koma blogg...promise...

 


» 5 hafa sagt sína skoðun

19.04.2007 20:22:31 / Ballisig

19.04.07

Jæja nú er maður kominn heim frá spáni og prófin að fara að byrja. þá fer maður að stinga kaffikönnunni í samband og koma sér vel fyrir í stólnum við eldhúsborðið heima á suðurgötu. Ætli ég gefi mér þá ekki einar nokkrar mínútur til að skrifa hvað hefur drifið á daga manns að undanförnu...

þangað til þá..

adios


» 1 hafa sagt sína skoðun

26.02.2007 16:41:34 / Ballisig

26.07.06

  •  
    • What´s up....nigga ponk ass mother fucker je je man...what´s diggin?
    •   
    • Já þegar menn eins og Bóas í Danaveldi og Hinrik í Mývatnsveldi eru farnir að biðja um blogg er ekki hægt að skarast undan því!!! Já þvílíkur heiður að fá komment frá þessum mönnum en eins og lesednur vita þá er Bói næst besti rauðhærði maðurinn sem spilað hefur í Keflavík og Hinrik er næst besti maðurinn sem spilað hefur með hinu glæsta félagi Mývetningi og Bjössi á Stöng sá þriðji besti.
    • já fyrst við erum komin inn á þetta málefni er best að setja inn smá könnun hérna sem menn svara bara í kommentunum.
    • Spurningin er
    • Hverjir eru þrír bestu rauðhærðu leikmenn Keflavíkur frá upphafi? (kannski betra að spyrja hverjir eru í 2.3 og 4 sæti yfir bestu rauðhærðu leikmenn Keflavíkur frá upphafi, það er náttlega augljóst hver er bestur.)
    • Já svo hafa menn verið fá á sig ýmsar nafngiftir undanfarið og helstu nafngiftir eru (svo eru vara nafngiftir innan sviga):
    • Bjössi "Dress man" (Bjössi siglfirðingur)
    • Gaui "naðra" (Guðjón "rauða spjaldið" Antoníusar 
    • Haddi "geirvarta" (Hallgrímur "Túristi" Jónasson treysti á að hann vinur minn mæti í Barcelona  hlírabolnum með spánarderhúfuna og myndavélina um hálsinn í æfingaferðinni í apríl
    • Já ég hef alltaf gleymt að tilkynna ánægju mína á því að Hinrik sé með rauðhærðri stelpu. Þetta þykir mér gríðarlega ánægjulegt og sannar það að allir geta lært og þroskast og er ég vongóður um að Ásgeir verði byrjaður með rauðhærðri stelpu innan skamms og saman muni þeir Hinrik ala rauðhærð börn í heiminn. 
    • Svo vill ég óska Högna vini mínum til hamingju með árangurinn undanfarið. En hann sendi 100.000 sms-ið sitt síðan hann kom í Keflavík um helgina og ekki nóg með það heldur var stelpan sem hann var að sms-ast við sú 50. Já til hamingju Högni með þenna glæsta árangur!
    • Haddi er byrjaður að vinna á leikskóla og hann stóð undir væntingum og var orðinn veikur eftir 4 daga. Maður hefði nú ekki grætt mikið á lengjunni ef maður hefði veðjað á það þar sem stuðullinn var bara 1,20.......................nei já 1.15.
    •   J á endum þetta á fréttum handa fréttaþyrstum lesendum:  Samkvæmt heimildarmanni síðunnar varð Haddi ekki veikur í vikunni. Talið er hinar miðaldra samstarfskonur Hadda séu óðar í Hann og að Harpa kærasta Hadda hafi skipað honum að fara ekki í vinnuna á föstudaginn þar sem hún var búinn að frétta af löngun kvennanna í ungan og ferskan fótboltastrák. Allt varð víst vitlaust á öskudaginn þegar Haddi dressaði sig upp í fótboltabúninginn og kepptust þær við syngja fyrir hann til að fá "nammi" 
    • Hreindýrin Óttar og Högni eru báðir í gifsi þessa dagana og er orsökin ókunn. Báðir segjast þeir hafa meiðst við knattspyrnuiðkun en síðan hefur heimildir fyrir því að meiðslin hafi komið eftir samskipti við unga dömu í Keflavík sem þeir hafa báðir verið viðriðnir. 
    • fleiri fréttir síðar...  
    • Seeeee ya

» 17 hafa sagt sína skoðun

02.01.2007 18:17:37 / Ballisig

02.01.07

halló halló...nýtt ár gengið í garð og vill ég þakka öllum kærlega fyrir liðnar stundir á árinu sem leið...!;) Ég held að árið 2006 hafi bara verið frábært í nánast alla staði!

Árið byrjaði á því að Haddi skipti yfir í Keflavík og var því langþráður draumur okkar Hadda að rætast en það var að spila saman í efstu deild á Íslandi, og ekki var verra að við fengum að búa saman og meira að segja í alveg ágætis íbúð. Æfingarnar byrjuðu af krafti og svo byrjuðu æfingaleikirnir og Deildarbikarinn og gekk okkur bara býsna vel og komumst í úrslit í deildarbikarnum en töpuðum honum fyrir FH í spennandi leik. Í byrjun apríl fórum við til Spánar í æfingaferð sem var mujög skemmtileg og þjappaði hópnum vel saman og greinilega alveg nauðsynlegt að komast aðeins úr kuldanum á Íslandi og fara í svona æfingaferð. Tímabili' hófst í maí á móti ÍBV og töpuðum við verðskuldað 2-1. í Næstu leikjum gekk ekki nógu vel og vorum við alls ekki að spila sannfærandi fyrr en við við áttum frábæran leik á móti KR heima sem við unnum 3-0. En það var síðan ekki fyrr en í 9 umferð að við fórum í gang en þá byrjuðum við að spila frábærlega og unnum hvern leikinn á fætur öðrum og kórónuðum við spilamennsku okkar með sigri á FH í 14.umferð. EN eftir það hrundi leikur okkar og við unnum ekki leik eftir það sem var býsna leiðinlegur endir á annars ágætu sumri í deildinni. En við hugsuðum ekki lengi um það þar sem að við vorum komnir í úrslit í bikarnum. 30.sept var svo úrslitaleikurinn við KR á Laugardalsvelli. Eins og kannski flestir muna unnum við þann leik 2-0 í frábærum leik. Ekki er hægt að lýsa tilfinningunni með orðum sem maður upplifði eftir að dómarinn flautaði leikinn af. Dagurinn flaug áfram og maður flaut með gjörsamlega í sigurvímu og þegar maður fer að minnast leiksins núna man maður bara óljóst eftir deginum, svo hátt var maður uppi. Þetta hljómar kannski dramatískt en fyrir strák sem hafði horft á hvern einasta úrslitaleik síðan hann var pínulítill á heimili sínu í Mývatnssveit og dreymt um að fá að spila þennan leik var þetta ógleymanleg upplifun.

Snemma á árinu komst ég í u-21 landsliðið í fyrsta sinn og spilaði alls 5 leiki með þeim á árinu. Í ferðunum kynntist ég mörgum frábærum mönnum og vill ég þar helst nefna, Ragga Sig, Guðjón Baldvins, Krumma, Bjarna Vidd og  Bjarna Hólm en að sjálfsögðu voru allir þarna miklir snillingar.

Eins og ég sagði fyrr í pistlinum var frábært að fá Hadda til Kef en árið gat ekki byrjað mikið betur. Snemma á árinu byrjuðum við að spila Póker af miklum krafti og fóru nokkur kvöldin í það. í Febrúar var pabbi gamli fimmtugur og dreif ég mig norður í veisluna sem var haldin honum til heiðurs. Já pabba og systir minni á ég mikið að þakka fyrir það hvar ég er staddur í dag. Þau keyrðu mig ótal ferðir til Húsavíkur þegar ég var ungur og ekki með bílpróf svo að ég gæti æft og spilað með völsungunum og hafa þau stutt mig heilshugar allan minn feril. En einnig á ég pabba og mömmu Hadda mikið að þakka en ég gisti og borðaði ótal sinnum hjá þeim þegar ég spilaði með Völsungi og eru þau orðin mín önnur fjölskylda. Í maí voru prófin í Háskólanum og náði ég þeim 2 prófum sem ég tók en ég þurfti ða sleppa 1. Já ekki hefur skólavist mín í verkfræðinni verið nein frægðarför hingað til. Á fyrsta árinu kláraði ég ekki nema 5 áfanga en ætti að vera búinn með 10. Það er nefnilega ekkert grín að lenda í því allt einu að vera að falla fyrir mann sem hélt að hann væri ágætis námsmaður og var með ágætis einkunnir í framhaldsskóla. En þrátt fyrir þetta mótlæti hef ág ákveðið að klára þetta nám alveg sama hversu langan andskotans tíma það mun taka. Ég mun allavega aldrei láta spyrjast út um mig að ég hafi gefist upp;). Sumarið var fínt en það er svosem ekki mikill tími til að gera eitthvað á sumrin með boltanum. Um verslunarmannahelgina dreif ég mig heim í sveitina og verð ég að segja að sú helgi var ein sú allra besta ´sem ég hef upplifað. Ég kom heim á aðfaranótt fimmtudags og þegar ég vaknaði skein sólin eins og hún átti eftir að gera alla helgina. Alla daga fór ég í golf með pabba og ætli ég verði ekki að viðurkenna ósigur minn þetta árið en kallinn vann 2 hringi á móti 1 hjá mér. á föstudeginum fór ég inn á ak á djammið og hitti þar góðvin minn hann Jón Kolbein og djammaði með honum, en það er óhætt að segja að djömmin með honum eru þau skemmtilegustu enda ekki annað hægt þegar maður er að skemmta sér með svo miklum meistara..! Þetta kvöld kynntist ég einnig Báru sem átti svo eftir að verða kærastan mín. Frábær stelpa sem ég var með þangað til núna um jólin en þá hættum við saman. Skólinn byrjaði síðan fljótlega eftir verslunarmannahelgina. Restin á árinu var aðallega bara skólinn en í október voru reyndar 2 lokahóf sem maður skemmti sér mjög vel á. Síðan kom maður bara heim um jólin en ég var í 2 daga hjá mömmu í svartárdalnum og kom svo hingað á þorláksmessu og það er bara ekkert sem jafnast á við þessa tvo staði.

En núna er maður orðinn vel endurnærður og bara orðinn spenntur á fara suður aftur og byrja að æfa og byrja í skólanum. Ég hef fulla trú á árinu og ef það verður jafngott og árið 2006 hef ég engu að kvíða. Í lokin vill ég aftur þakka kærlega fyrir árið og vonandi hitt ég ykkur öll hress og kát á nýju ári.;)

Kv Baldur Sig


» 16 hafa sagt sína skoðun

06.12.2006 22:55:08 / Ballisig

06.12.06

Goda Kveldid...

Adeins ad lata heyra i mer herna og kannski koma med eitt venjulegt blogg svona einu sinni. Styttist odum i profin og fallid i staerdfraedinni...Er ekki ad ganga vel ad laera undir hana tar sem ad eg einfaldlega skil hana ekki nogu vel...ekki gott mal!!! Er ad velta tvi fyrir mer hvort eg eigi ad fara beint til mommu eftir profid tann 21 eda fara a haskolaballid a Broadway og fara daginn eftir til mommu...baedi gridarlega freistandi kostir en eg reikna nu med ad fyrri kosturinn verdi fyrir valinu!! Get ekki bedid eftir ad komast i jolafri!!

Helt ad eg tyrfti ad fara eyda heilu bloggi i ad lysa yfir hvad eg hata allt sem vidkemur portugolskum fotbolta adan en sem betur fer nadi Man.Utd ad knyja fram sigur og mer synist ad teir seu komnir med adra hondina a meistaradeildarbikarinn eins og i deildarkeppninni!!!

Herna kemur sma gata: THREE  - EIGHT = -2

Gerid 4 strik til ad tetta passi....Tetta er svipud gata og Freysi var med a sinni sidu en adeins lettari kannski...eda allavega fattadi eg hana strax...!

Frettir: Gull...Freyr Gudlaugsson...Freysi Gull...KvennaGull er vist ekki latin i fridi vid profalesturinn. Freysi ,sem tykir med eindaemum gafadur og stefnir rakleidis a duxinn i Vidskiptafraedinni, er eltur a rondum af stelpunum i vidskiptafraedinni, en teim langar vist ad lata Freysa kenna ser lexiu...!!!

Studlarnir fyrir naestu helgi i tippklubbnum um ad hver verdi i toppsaetinu eftir hana eru eftirfarandi: Andri 1.35 (enda nuna i toppsaetinu), Baldur 1.25 ( vita greinilega hvad hann getur), Freysi 1,85 (notar bara gafurnar i tetta) allir hinir eru settir med 3 i studul nema Bjorn Hakon er med 5,40 (enda er settur studullinn 1,15 a ad hann gleymi ad tippa eda kludri sedlinum sinum einhvern veginn)

ekki fleira i frettum...

best ad fara i bad (boy..yes i'm a bad boy..)

sjaumst...


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 5